Tóka Blog
Átti skemmtilegt föstudagskvöld, hitti Hafþór Snjóálf og frú í fyrsta skipti í langan tíma. Við smökkuðum Jólabjóra og komumst að því að Jólakaldi ber höfuð og herðar yfir aðra jólabjóra þetta árið, bara unun í hverjum sopa. Og svo er flaskan einstaklega falleg og stílhrein..
Jóabjór Ölfusholts(skjálfti) tja...honum var hellt niður í ræsi...Hvaða manni datt í hug að blanda Jagermaster útí bjórÞetta var hroðbjóður og að hafa Grýlu framan á bjór er ekki að gera sig..Fórum í frábært afmælisteiti hjá Magna eftir þessa smökkun.Langt síðan að ég hef skemmt mér svona vel.
En allavega er lærdómurinn þessi krakkar mínir....


Jólabjór Ölfusholts....OJJ BARA ULLABJAKK: Brúnn, mjúk meðalfylling, sætuvottur, ferskur, lítil beiskja. Seytt rúgbrauð, grösugur kryddkeimur. Vinbud.is
Já ég er klikk...Stundum þegar ég hef ekkert að gera vafra ég mig inn á barnaland og skoða spjallborðið þar...Með því veit ég að það er fólk þarna úti sem á greinilega ekkert líf...eða allaveg minna en ég......hér eru dæmi um umræður dagsins...
NR 1.
hrafnyr | 1. desember '08, kl: 17:06:02 | Alls sótt: 38illt i brjóstinu...
ég er að drepast í öðru brjóstinu, líður eins og ég sé með stálma í því, eða bara að brjóstið sé eitt kýli.... hvað gæti þetta verið? ps: reyni að forðast að fara til læknis því síðast þegar ég fór til hans spurði hann hvort ég væri lessa.
NR 2.
Squidward | 28. nóvember '08, kl: 01:28:32 | Alls sótt: 832Amma í eignafalli fleirtölu
Hvernig segir maður það?
Ömmur
Ömmur
Ömmum
??? Ömma
NR.3.
Nancyb | 29. nóvember '08, kl: 19:25:47 | Alls sótt: 1011 oh ég er frosin
úr kulda, puttarnir eru að detta af mér, mér er svo kalt, er búin að vera að vesenast í allan dag að finna húsnæði fyrir son minn. Og skratti er kalt úti, brrrrrrrrr
oG þetta er bara byjunarþráðurinn af þessum umræðum...svo byrjar ballið...

Einþór
Jæja drengur maður...var á bloggrúntinum áðan og ráfaði inn á bloggið hjá Ólafi nokkrum Björnssyni...sá þar að það var áskorun á mig og nokkra fleiri að hysja upp um okkur bloggbrækurnar og fara að blogga eins og áður fyrr...Er sammála Óla að maður saknar þess tíma þegar allir voru að blogga relgulega. Þessa vegna ætla ég að taka Óla á orðinu og gerast atvinnubloggari..Og skora í leiðinni á Gugg að opna fyrir bloggið hjá sér. Annars er maður hálf dofinn þessa dagana, hundleiðinlegt svona kreppubull..Dabbi kúkur,Dabbi ekki kúkur..Sami skíturinn...
Betra er þá að hverfa til baka þegar lífið var einfaldara...Sá í mogganum í vikunni við einhvern dúdda sem var forstjóri gosverksmiðjunar Sól, sem framleiddi Sól Cola. Þar var hann að fara yfir gjaldþrotasögu sína...Hvernig í andsk..fór þessi maður á hausinn...Hann var með bestu markaðssetningu Íslandssögunar...Kom sem sagt auglýsingaherferð frá þeim að dós nr.milljón hefði óvart farið til dreifingar og sá sem myndi kaupa hana og skila inn myndi fá 100.000 kr(sem vorur gríðarlegir peningar þá)......En dósirnar voru tölumerktar unir botninum..Ég keypti ábyggilega 300 svona dósir og var búinn að ákveða í hvert skipti að nú myndi ég hitta á réttu dósina..Ekki drakk ég þessa dós...og frétti heldur aldrei af því að nokkur maður hafi fundið þessa dós...Og allavega þá fór þetta blessaða fyrirtæki á hausinn og leyndamálið um dós nr milljón fór með því...Af hverju var ekki þessi maður spurður út í dósina í viðtalinu...Er að spá í að hringja í hann...
Sælir nú...Ákvað að setja saman smá lista yfir....
KJÁNABJÁNA VITLEYSINGAR ÍSLENSKA LÝÐVELDISISNS Á LÍÐANDI STUNDU
(hvernig hljómaði þetta?)

Bjartsýnis kjánaprikið...Ný sloppinn af Hrauninu..Hvað gerir hann? jú brýst inn hjá forstjóra Securitas...Góð hugmynd?

Heimski kjánabjáninn...Búðarstarfsmaðurinn sem tók við 10.000 kr seðli með mynd af Dabba og gaf 7000 krónur til baka...Starfsmaður mánaðarins...en sennilega orðin atvinulausi maður mánaðarins..
Úff... Sorglega bjánafíflið...Úff að detta það í hug að covera Fjöllin hafa vakað...og halda að það sé geðveikt kúl hjá sér...Finn fyrir ógleði þegar ég horfi á þett myndband...Kjánarhrollur upp á -10 gráður..
Magnús í bæ Bítlana...BÆ
Nóg er af neikvæðum fréttum í fjölmiðlum þessi misserinn..Kreppa þetta og kreppa hitt...það liggur við að maður fari að óska eftir að Ísbjörn láti sjá sig...svona til að krydda umræðuna...En DV.is fór gjörsamlega yfir strikið...Þeir birtu frétt undir fyrirsögninni "Rass Töru Reid vekur óhug". Kreppuvæl hvað...og hér er myndin sem fylgdi fréttinni...
Óþarfi að koma með svona fréttir ofan á allt saman sem gengið hefur á í okkar þjóðfélagi...sammála??
Einþór
Jæja...allt að fara til fjandans......Bravó Davíð...Bravó...og lok ræðu Geirs..."guð blessi Ísland"...úff svoldið George Bush legt...gubb gubb...
En til að leiða hugann burt frá þessu rugli..þá smellti ég hér inn skets frá nýjum þáttum little birtian usa..sem er tær snilld...
God bless iceland....
Skilst að það sé búið það sé komið sírennsli í ríkisklósettinu..og það sé allt að fara niðrum þá pípur...Skólpið að springa..Danska krónan í 20 krónum þannig að Dagný sös getur farið að hætta að væla yfir því hvað allt sé dýrt hérna...skilst að meira segja bjórinn sé orðinn ódýrari fyrir Danan hér en heima við miðað við gengi...Hlev..gaman að þessu...Svo á ríkið allt í einu eitt stykki banka...viðskiptabankann minn..Átti nú ekki alveg von á þessu..þarf að vera í réttum flokki núna til að fá lán hlýtur að vera....

Pókerkvöld í gær, eitt skemmtilegasta í langan tíma, fékk þannig spila að ég gat spilað frekar agressive..En var svo smá óheppinn á stóru höndunum..En samt helv..skemmtilegt...Gutti sagði okkur að skrifa qqqqq í google og ýta á i feel lucky hnappinn gerði það þegar ég kom heim...og takk Gutti þú ert fífl...og þið hin....ekki gera þetta...
Er að fara á völlinn í dag Keflavík-Fram..Þetta verður rosalegur stemmari við erum að tala um að 5-6000 manns á vellinum...vona að þeir nái að landa þessu enda eiga þeir það skilið, hafa spilað langbesta boltann í sumar..með 3 mörk að meðaltali í leik..það er ekki slæmt..
Já og eitt að lokum...Guggur var að tala um í gær að hann hafi nú farið á sex and the city í bíó...og að þættirnir væru einir þeir bestu sem hefur komið í sjónvarp...Guggur,Guggur,Guggur...þú verður að fara að hugsa um kúlið...og hann er ekki að koma á völlinn með mér í dag því hann er að fara að kærustuparast...
Er búinn að vera frekar latur síðustu daga að láta eitthvað að viti hérna inn..Annars lítið að gerast á suðurnesjunum þessa dagana..Horfði á Man Utd-Chelsea í gær..mínir menn að byrja þetta mót frekar rólega...en þetta kemur allt..En hápunktur leiksins var þegar reynt var að myðra Ferguson...eins og sjá má á þessu myndbandi...
Geðveikur dagur í gær..Ég og Guggur fórum í fullum skrúða niðrí miðbæ eftir hádegi í gær og þræddum keltnesku pöbban..Viðtökurnar frábærar...drukkum mjöð með mönnunum í pilsunum..hressara fólk er erfitt að finna...Tókum svo leið 14 og hoppuðum út í glæsibæ og hittum þar fyrir tólfuna á Ölver..Ágætis stemmari..og óx er á leið..KSÍ gerði svo smá mistök með að spila íslenska þjósönginn fyrst...skildi það ekki alveg...Annars var alveg ótrúlegt að sjá hvað hinir 8000 íslendingarnir voru steindauðir...gátu ekki einu sinni gert "íslnad klapp klapp klapp ísland"..og lélegt af landsliðsmönnunum að þakka ekki tólfunni stuðningin því hún stóð fyrir sýnu...En frábært deit Guggur...Takk fyrir daginn gæskur....

Tilbúnir í fullum skrúða...sér einhver eitthvað athugavert við myndina?
Þessi kom hlaupandi að okkur til að tjá okkur að hann spilaði handbolta..var víst markvörður...en ég og Guggur voum dulegir að gorta okkur af handboltalandsliðinu okkar...
Hér er svo stemmarinn í "dýrari" stúkunni...skammarverðlaunin....
Þetta er víst bolur dagsins...
youtúbari...af stemmaranum hjá skotunum þegar þeir skoruðu fyrsta markið...
Fleiri myndir koma á fésbókinni(facebook)
hilsen...
Ég á deit í dag...ég og Guggur ætlum í rómantískan hádegisverð á american style...rölta svo saman hönd í hönd á öldurhús í miðbænum og spjalla við menn í pilsum...svo ætlum við að skunda á karíokístaðinn Ölver og sötra allskonar með fólki í buxum....Því næst ætlum við að fara á keppnisleik íslendinga og skota í knattspyrnu...Fullkomið Deit....
Annars er þetta hressandi íþróttagrein...vaxandi skilst mér...

Var á leið í vinnunna í gærmorgunn..keyri semsagt frá Njarðvík til Grindavíkur...Er á útvarpsstöðvarflakki klukkann að nálgast 8:30..ranka við mér og er kominn framhjá afleggjaranum til Grindó..og þarf að fara að keyra í 5 km til að snúa við....að vísu var búið að breyta afleggjarnum vegna framkvæmda en ég hitti líka á undarlegt útvarpsefni sem fékk mann sannarlega til að vakna og gera mann hálf stjarfann....hlustið á það hér...sem sagt efsti linkurinn á síðunni....
Er í lagi að vera með svona útvarpsefni á morguntraffíkinni? hljóta að hafa verið nokkrar afan á keyrslur....
Djamm í kvöld...hver hefði trúað því að maður ætti eftir að fara á ball í Sandgerði?...Sólinn frá Sandgerði spilar í hléi...allavega er verið að skúbba um það...En Á móti sól mun sjá um tjúttið fyrir og eftir hlé...Held að þetta verði massastuð...Skora bara á fólk að bjalla í mig og koma með á dansiball...En í tilefni að það er djamm framundan þá ætla ég að láta hér gott stuðlag með góðum listamanni sem alþjóð veit að ég hef mikla mætur á..
Já..það fór víst ekki framhjá neinum að íslenska handboltalandsliðið kom heim í dag..Áttum engar herþotur til að taka á móti þeim, þannig að við sendum tvær þyrlur og eldgamla flugvél...Svolítið sveitó en sætt...er það iggi? Við famelían drifum okkur til Reykjavíkur til að taka þátt í fárinu...þetta var einu orði sagt GEGGJAÐ...Þvílíkur stemmari...50.000 manns...Frábærlega skipulögð móttaka og eitthvað sem þeir áttu svo sannarlega skilið frá þjóðinni því þeir hafa gefið henn svo mikið og nú var komið að okkur að gjalda þá gjöf og þakka fyrir okkur...ÉG HEF ALDREI VERIÐ JAFNSTOLTUR ÍSLENDINGUR....kemst samt brátt niðrá jörðina því í september er stefnan tekinn á Ísland vs Skotland í fótbolta...En fótboltaliðið er helv..gott í því að koma manni niðrá jörðina......verðum þá aftur lítasta land í heimi...en í dag erum við helvíti STÓRUST...
NJÓTUM ÞESS
HETJUNAR HYLLTAR!!!
Við feðgarnir að sjálfsögðu með rétta útbúnaðinn....Stoltir Íslendingar....
Tókastaðir vilja Finni.tk fyrir aðstoð við þessa færlsu og mun hann fá Risahraun í staðinn...
Ég er alveg viss um að þið séuð öll að vellta því fyrir ykkur hvar ísraski dýfingarmeistarinn var á ólympíuleikunum....hef heyrt að hann hafi fallið á lyfja prófi en hann var víst einn sá sigurstranglegasti fyrir leikana enda búinn að æfa stíft í allt sumar....
Hef það ekkert lengra í dag...og takk Binni fyrir að commenta..enda sleipur í reikningi
Svaf ekki mikið síðustu nótt...Var svo spenntur fyrir leiknum....Held að klukkan hafi verið að nálgast 5:00 þegar ég sofnaði...vaknaði um 7 og fór út í garð að flagga fánanum..sól og stillt veður...var dágóðastund að brasa við þetta og þegar ég dróg fánann að húni byrjaði að hellirigna og regnbogi myndaðist í sólargeislunum...Ég var alveg viss á þessu mómenti að við myndum vinna gullið...en ekki fór það svo...En við unnum silfrið..og þvílíkur árangur...Hvað þetta handboltalandslið hefur veitt íslensku þjóðinni í gegnum tíðina...úff og loksins get ég sagt að ég sé kominn yfir Dana leikinn fyrir tveimur árum(tviframlengda á HM í Þýskalandi) Ég er formlega búinn að jafna mig á honum....
En allavega..Takk strákar...Þið eruð hetjur klakans....
p.s.fólk..það er allt í lagi að skirfa í gestabókina...eða commenta svo maður viti nú hvaða vitleysingar kíkja hingað inn....og ég skal fara að hætta að blogga um handbolta.....hehe..
Drengur Maður!!!! Styttist í úrslitastund....Er ekki að meika þessa bið og að horfa á þennan leik...Ég meika ekki spennandi leik..Vona að gullið komi og strákarnir bíííb ekki....
Það verður vaknað snemma hér á bæ..og flaggað í fánastönginni á slaginu 7..Eldaður morgunmatur og svo horfir öll fjölskyldan á leikinn saman....En hvað gerist í leiknum? spáið í geggjuninni ef við fáum að heyra þjóðsönginn á verðlauna afhendingunni...Og fólk það er í lagi að gráta á morgunn....Miðað við hvernig tárin láku eftir Spánarleikinn..þá verður ábyggilega tveir vasaklútar í fyrramálið....

Maggi....á ekki eftir að sofa mikið í nótt....Spenna Spenna Spenna...
Ef manni klökknaði eftir Pólverjaleikinn..þá viðurkenni ég fúslega að ég grét eftir þennan leik....Þvílíkt móment...þvílíkt lið...Spáið í því...eftir EM höfnuðu hver þjálfarinn eftir öðrum starfinu...Gummi Gumm kom og reddaði málunum...og hefur gert kraftaverk...Nú er bara að halda áfram að trúa....Allt er hægt....Eins og Dorrit sagði...Ísland er STÓRASTA land í heimi...held að hún hafi gjörsamlega hitt naglann á höfuðið...og Þorgerður Katrín átti líka gullmola...Hvar eru Danirnir?...Allt orð að sönnu....

Maggi kveður að rifna úr stolti............
Best heppnaðasta auglýsing íslands fyrr og síðar er án vafa auglýsing Hreyfils sem kom fyrir augu landsmanna fyrir sirka 12-13 árum..Í þessari auglýsingu söng Flosi Ólafs símanúmerið til að geta munað það..Allir lærðu það...allt frá öfum og ömmum til leikskólabarna sem þýðir að enn muna allir þetta helv..símanr...12 árum síðar...Meira segja tók hljómsveitin SHAPE þetta lag upp á sína arma og skeytti því inn í Killing in the name lagið á böllum...lýðurinn trylltist úr fögnuði......en allaveg þá getið þið horft á auglýsinguna hér fyrir neðan....ENJOY...
Það er ekki oft sem maður klökknar eftir að horfa á kappleik..Þvílík geðshræring í morgun..Gæsahúð upp í heila...og Óli átti svo lýsandi setningu eftir leikinn "Þó þú deyir hérna á vellinum, þá deyrðu lifandi."
Helvítis Danirnir duttu svo út...yndislegt...ævintýrið heldur svo áfram á Föstudaginn á móti Spánverjum....Getum við farið alla leið??

P.s..í þessari skemmtilegu niðurtalningu sem mágur minn setti inn á síðuna segir að það sé 3600 dagar í 40 afmælið mitt
....en þess má geta að það eru sirka 500 dagar síðan að hann var fertugur....
Loksins...skítt með íslenska erfðagreiningu og rannsóknir þeirra, skítt með rannsóknir á gróðurhúsaáhrifum, skítt með Hafró, skítt með Einstein...Nú er loksins komin tímamótarannsókn sem mun auðvelda líf mitt og fjölda annara...tja og ábyggilega bjarga heiminum...loksins loksins...lesið um hana HÉR...
Prinsipp maðurinn Guggur var að tala um þetta um daginn..um greyið konuna sem var kjaftstopp á Alþingi...frekar neyðarlegt...En annars er Guggur hress og aldrei orðstopp....Spurnigin er hvenær Guggur borgi mér kippurnar tvær sem hann skuldar mér fyrir sísonið í fyrra...Ha!!! Guggur....frekar lélegt að vera ekki búinn að borga og nýtt síson byrjað.....Guggur!!!!....Vil líka minna á skoðanakönnunina hér á síðunni en hún tengist GUGGI....
Jæja hafið þetta helv..baunirnar ykkar...Danir eru ekki smá leiðinlegir handbolta menn...þvílíkur hroki og leikaraskapur...Eins og þulurinn sagði.um einn Danann... að hann hefði átt að fá óskarinn fyrir leik og jafnvel líka fyrir bestu erlendu kvikmyndina líka....nú er bara spurning hvort að danskir nái stigi gegn þýskum og skríði áfram..og hvort að við náum toppsætinu....
Og go Guðjón Valur....fott hjá honum að láta yfirvælukjóann heyra það..lesið um það hér

Gerum okkar besta..og aðeins betur en það það sem þarf.....
Væl,væl,væl....Kreppa og allt að fara til fjandans og það hvað gera ráðamenn þjóðarinnar gera er að gera nákvæmlega ekki neitt..og segja helst ekki neitt heldur...meira segja sussa á fréttamenn þegar þeir eru spurðir út í málið...Það er líka rosalega sterkt að vera með dýralækni sem fjármálaráðherra...hann þekkir þó fiskana á klinkinu...Já og til hamingju Reykjavík að vera komin með nýja borgarstórn með öllu tilheyrandi..Reykvíkingar hljóta að vera komnir með gyllinæð eftir að hafa orðið að beygja sig niður og fengið bláu höndina hvað eftir annað upp í óæðri endann...vóó nú fer ég að hljóma eins og Útvarp Saga...
Jæja best að fara að taka til í tengla safninu...endilega látið mig vita ef þið viljið tengil.....
Tókastaðir yfir og út....
Youtube er yndislegur vefur..þar finnur maður allt á milli himins og jarðar...meðal annars má finna innslag úr þættinum Dagsljós..innslag þetta fjallar um Kidda á Vídeóflugunni..ansi skemmtilegt innslag þar sem Kiddi sýnir meðal annars diskó hæfileika sína....mynblöndunin og klippingin er líka alveg brill....
Jæja....Hvernig líst ykkur á þetta....Maggitoka.com...snelld...Ég skreið víst inn á fertugsaldurinn um daginn (hoppa hæð mína yfir því, ef ég gæti sökum aldurs) og fékk þessa heima síðu í afmælisgjöf...ekkert slor það...og þakka ég systur minni og co í Baunalandi fyrir það...Gamall draumur að rætast...en allavega þá er þessi síða í vinnslu og verður töluvert um breytingar hér á næstu misserum...
en allavega velkomin á heimasíðuna...og endilega skiljið eftir slóð á link þannig þið getið linkast við Veldið...
Magnús Áskelsson "Er netið bóla?" ööööö nei..






